Afhending húsa

Kofar og hús - Lager

Kofar og hús – Pakkning – Naust hús

Húsin koma ósamsett, pökkuð inn í plast og vel útbúin til flutnings.  Húsin eru vel varin í pakkningunni og geymast vel utandyra.

Ef við eigum húsið til á lager er afgreiðslutími um 1-2 virkir dagar.  Ef kaupandi getur ekki tekið við húsinu strax getum við geymt húsið í nokkrar vikur eftir samkomulagi.

Við afgreiðum húsin af lager okkar frá skv. opnunartíma lagers (sjá fyrir neðan). Við lyftum húsinu á kerru eða inn í flutningabíl. Flest húsin passa ágætlega á þokkalegar fólksbílakerrur en einnig er hægt að fá þau send heim að dyrum með sendibíl sem við getum bent á.

Sending út á land er einföld.  Við erum með verðlista frá Flytjanda með 50% afslætti af verðskrá sem okkar viðskiptavinir fá.  Um er að ræða verð fyrir flutning frá okkar lager að stöð Flytjanda í viðkomandi bæjarfélagi.  Ef óskað er eftir sendingu heim að dyrum semur kaupandi beint um það við Flytjanda þegar húsið er komið á stöð.

 

Kofar og hús - Lager

Kofar og hús – Lager

LAGER – STAÐSETNING

Lagerinn okkar er á hafnarsvæði Eimskipa í Hafnarfirði, Óseyrarbraut 12.

Opnunartími lagers er eftirfarandi:

  • Mánudagar – fimmtudagar, opið frá 8:00 – 16:00.
  • Föstudagar, opið frá 8:00 – 15:00.
  • Helgar og rauðir dagar – Lokað.

 

 

 

 

Neðangreind mynd sýnir dæmigert garðhús komið á kerru: