Garðhús

Stapi

Öflugt hús

Stapi er öflugt hús á frábæru verði – Hús sem slegið hefur í gegn síðan við komum fyrst með það á markaðinn 2017!
 
Um húsið:
Stapi er hugsað sem gott garðhús og/eða tækjageymsla (lítill bílskúr).  Húsið er ílangt og getur því hentað vel þar sem landrými er takmarkað, t.d. við hlið aðalhúss.
 
Húsið er 2,8 x 5,35m að stærð, samtals 14,98 fm.
Mesta hæð er 2,45m.
Húsið kemur án gólfs (t.d. hægt að setja á steypta plötu, hellulögn, malarplan eða smíðaða grind).
 
Húsið er gert úr 44mm bjálkum með tvöfaldri nót.
Stálteinar ganga í gegnum veggina í öllum hornum til að herða húsið saman.
 
Húsið er 14,98 fm að stærð. Tvöföld hurð án glers er inn í húsið.
Auðvelt er að bæta við gluggum og hurðum á húsið með því að saga úr bjálkum.
 
EKKI ÞARF AÐ SÆKJA UM BYGGINGALEYFI FYRIR ÞESSU HÚSI.
Allar lagnir eru leyfðar.
 
 

Verð: 1.100.000 kr.

TILBOÐ 825.000,-

Auka bjálkaröð: 58.500,-

VÆNTANLEGT 20. MAÍ – OPIÐ FYRIR PANTANIR

Möguleikar:
– Auka bjálkaröðum er hægt að bæta við þetta hús til þess að hækka það og gera það ennþá rýmra. Slíkt eykur enn frekar möguleikann á hilluplássi.

Myndir

Hér fyrir neðan eru myndir af E.  Tölvugerðu myndirnar eru af stöðluðu húsi og gefa hugmyndir um hvernig má raða inn í það.